Kjölur

Verið velkomin á heimasíðu Kjalar

Á þessari síðu má sjá það helsta sem Bókbandsstofan KJÖLUR hefur lagt upp með í starfsemi sinni. Frá upphafi hefur Kjölur unnið margskonar bókbandsverk fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Hin síðari ár hefur starfsemin tekið nokkrum breytingum, enda meiri áhersla verið lögð á útgáfu og ýmiskonar framleiðslu.

Tölvupósturinn okkar er kjolur@kjolur.com.

ÍSLAND allra veðra von

Í bókinni ÍSLAND allra veðra von, má sjá ljósmyndir eftir Björn Erlingsson, er sýna þann margbreytileika sem í íslenskri veðráttu birtist. Myndirnar eru teknar á öllum árstímum, við mismunandi birtu- og veðraskilyrði; í rigningu, snjó, hvassviðri og þoku. Nánast engin mynd er tekin í albjörtu veðri, en oftast hefur höfundurinn leitað fanga þegar ókyrrð hefur legið í loftinu og lagt upp í óvissuferðir með myndavél sína til að viða að sér efni.
Sjá má myndasýnishorn úr bókinni með því að ýta á (smella hér) til hægri ofarlega á síðunni. Eða fara inn á Ljósmyndir—myndabanki Bj.Erl. til vinstri á síðunni í yfirliti efnisflokka.


Þjóðsöngur Guðjóns Rúdolfs

 

http://myspace.com/gudjonrudolf

http://www.minimania.dk/

http://www.krauka.dk/

 

Tónlistarmaðurinn og lífskúnsterinn Guðjón Rúdolf Guðmundsson var að senda frá sér hljómdiskinn Þjóðsöngur. Tónlistin á disknum er unnin í samvinnu við Þorkel Atlason tónlistarmann sem sér um upptökustjórn.

Fyrir tveimur árum sendu þeir félagar frá sér diskinn Minimania og naut lagið Húfan af  honum mikilla vinsælda og stimplaði sig svo rækilega inn í þjóðarsálina, að það þykir orðið ómissandi á útihátíðum og öðrum mannfögnuðum.

Minimania var tilnefnd til dönsku heimstónlistarverðlaunanna á sínum tíma.

Á Þjóðsöngur er að finna hugljúf lög og texta sem fjalla um lífið á grákómískan og angurværan máta. Guðjón Rúdolf hefur ætíð verið þjóðlegur og að þessu sinni prýðir mynd af íslensku sauðkindinni hulstrið utan um diskinn. Diskurinn var tekinn upp í Árósum 2004 og
2005. Útgefandi er Kjölur.

„Það er eiginlega erfitt að lýsa þeirri súrealísku snilld sem umleikur sum lögin hér, ...á maður að hlæja eða á maður að gráta..., sagði Guðjón á sínum tíma um Minimaniu. Setningin á mjög vel við um þessa nýju afurð, sem er bæði sorgbundin og sælleg – en fyrst og fremst algerlega einstakt verk.“

Arnar Eggert Thoroddsen, Morgunblaðinu 12. desember 2005  * * * *


Ný ljóðabók eftir Þorgeir Þorgeirsson

 


Komin er út hjá Kili ljóðabókin Dagsformið eftir Þorgeir Þorgeirsson. Í bókinni er að finna sex kafla: Hringstigann, Hlutskipti, Á gulu ljósi, Sjálfsmyndina, Blendnar tilfinningar og Glæður, sem saman mynda safn 160 ljóða, þar á meðal nokkurra frásagnarljóða, og eru ljóðin ort á undanförnum 4 árum.

Höfundi er fátt óviðkomandi, en gjarnan er brugðið ljósi á ýmis sérkenni mannlífsins, ekki síst í nálægð við efri ár. Ljóðin eru sprottin úr nánasta umhverfi höfundar og samsömun við náttúruna er honum eðlislæg. Form ljóðanna er frjálslegt, án erindaskila, málfarið er hversdagslegt fremur en upphafið.

Þetta er önnur ljóðabók höfundar, sem er læknir með meinafræði sem sérgrein, og hefur hann starfað lengi erlendis, einkum í Svíþjóð, en einnig í Englandi og Ísrael, auk þess bæði í Reykjavík og á Akureyri.

 

 




© Kjölur 2005
Vefstjóri