Útgáfa

Kjölur hefur gefið út nokkrar bækur undanfarin ár og má ætla að útgáfa á bæði bókum og tónlist muni aukast hjá Kili á næstu árum. Allar bækurnar má panta beint í gegnum Kjöl.

 
ÍSLAND allra veðra von

ÍSLAND allra veðra von
Höfundur: Björn Erlingsson

Nánar...
 
Dagsformið

Dagsformið
 Höfundur: Þorgeir Þorgeirsson

Í ljóðabókinni Dagsformið eftir Þorgeir Þorgeirsson eru sex kaflar, sem mynda safn 160 ljóða. Ljóðin eru sprottin úr nánasta umhverfi höfundar og samsömun við náttúruna er honum eðlislæg. Gjarnan er brugðið ljósi á ýmis sérkenni mannlífsins, í nálægð við efri ár. Þetta er önnur ljóðabók höfundar, sem er læknir að mennt. Hann hefur áður gefið út ljóðabókina Endurfundi.

Nánar...
 
Samspil orða-mynda

Höfundur: Björn Erlingsson

Feig orð
Orð mín um frið
boða ófrið.
Eru feig,
fundin sek.

Orð mín um sátt
boða ósátt
á sama hátt.

Slík orð
þjóða engu
í heimi sem þessum
enda deyja þau í fæðingu.

 
Eitthvað að huxum

Eitthvað að huxum
 Höfundur: Þorgeir Þorgeirsson

Í bókinni Eitthvað að huxum, ræða ungur piltur og eldri maður saman um málefni líðandi stundar, eiga skoðanaskipti og leika sér að orðum. Það er pilturinn sem fitjar upp á umræðuefnum, en gamli maðurinn á síðasta orðið.

Nánar...
 
Tveggja heima skil

Tveggja heima skil
Höfundur: Björn Erlingsson

Í þessari bók kemur gamalt sveitafólk við sögu sem kann þá list besta að lifa í sátt við Guð og menn. Við landið, veðráttuna og unga fólkið sem oftast er í kapphlaupi við tímann, án þess að vita með vissu í hverju keppnin er fólgin. En gamla fólkið heldur sínu striki. Fer með bænir að kvöldi og lofar góðan dag að morgni.

Nánar...
 
Þjóðsöngur

Höfundar: Guðjón Rúdolf Guðmundsson og Þorkell Atlason

Fréttatilkynning:
Tónlistarmaðurinn og lífskúnsterinn Guðjón Rúdolf Guðmundsson var að senda frá sér hljómdiskinn Þjóðsöngur. Tónlistin á disknum er unnin í samvinnu við Þorkel Atlason tónlistarmann sem sér um upptökustjórn. Áður hafa þeir félagar sent frá sér diskinn Minimania og naut lagið Húfan af honum mikilla vinsælda og stimplaði sig svo rækilega inn í þjóðarsálina, að það þykir orðið ómissandi á útihátíðum og öðrum mannfögnuðum. Minimania var árið 2003 tilnefnd til dönsku heimstónlistarverðlaunanna.

Á Þjóðsöngur er að finna hugljúf lög og texta sem fjalla um lífið á grákómískan og angurværan máta. Guðjón Rúdolf hefur ætíð verið þjóðlegur og að þessu sinni prýðir mynd af íslensku sauðkindinni hulstrið utan um diskinn. Diskurinn var tekinn upp í Árósum 2004 og 2005. 

Umfjöllun um hljómdiskinn Þjóðsöngur:
Morgunblaðið ****
Viðskiptablaðið $$$$$

 


Tilkynningar

Dagsformið
eftir Þorgeir Þorgeirsson

 

Dagsformið

Leita