
| ÍSLAND allra veðra von |
|
Höfundur: Björn Erlingsson Af frummálinu hefur bókin verið þýdd yfir á ensku og þýsku. Í raun er um tvenns konar útgáfur að ræða af sama efni; tvö tungumál í hvorri bók. Um enska þýðingu sá Þorgeir Þorgeirsson, en þýska Angela Schamberger. Hvor bók er 96 blaðsíður í brotstærð 23 x 28 cm. innbundin í harðspjöld. „Á ferðum mínum hef ég oftast verið einn míns liðs og notið birtunnar svo lengi sem kostur hefur gefist. Farið á fætur í rökkri morgunsins, þegar sólin rís hægt bak við tjöld vetrarins. Upplifað þá einveru og það djúpa myrkur sem í óbyggðunum býr um nætur, þegar sumarið hefur kvatt og skammdegið boðað komu sína. Vaknað við hvíta jörð og óvissuna um það að rata til byggða.“ Auk þess að taka ljósmyndirnar og rita textann hefur höfundurinn hannað bókina, séð um umbrot, og að lokum bundið bækurnar inn.
|
Tilkynningar
Kjölur tók á dögunum í notkun nýja heimasíðu. Á henni er mögulegt að kynna sér starfsemi Kjalar og þær vörur sem fyrirtækið framleiðir og selur. Á næstunni mun bætast við síðuna Vefverslun þar sem viðskiptavinir geta pantað vörur frá Kili. Jafnframt munu myndasöfn með ljósmyndum eftir Björn Erlingsson bætast við undir liðnum Ljósmyndun. Síðan mun því taka nokkrum breytingum á næstu vikum. |
