
| Tveggja heima skil |
|
Höfundur: Björn Erlingsson Í þessari bók kemur gamalt sveitafólk við sögu sem kann þá list besta að lifa í sátt við Guð og menn. Við landið, veðráttuna og unga fólkið sem oftast er í kapphlaupi við tímann, án þess að vita með vissu í hverju keppnin er fólgin. En gamla fólkið heldur sínu striki. Fer með bænir að kvöldi og lofar góðan dag að morgni. Ljóðin, líkt og ljósmyndirnar hefur höfundur fangað á fáeinum augnablikum milli stríða, í önnum dagsins. Og fátt heillað hann meira en birta landsins, fegurð þess og deyjandi kynslóð sveitafólks sem ræktað hefur jörð sína af alúð og uppskorið hófsamt líferni. Stofuklukkan Hún kippir sér ekki upp við það Áhyggjulaus situr hún
|
Tilkynningar
Kjölur tók á dögunum í notkun nýja heimasíðu. Á henni er mögulegt að kynna sér starfsemi Kjalar og þær vörur sem fyrirtækið framleiðir og selur. Á næstunni mun bætast við síðuna Vefverslun þar sem viðskiptavinir geta pantað vörur frá Kili. Jafnframt munu myndasöfn með ljósmyndum eftir Björn Erlingsson bætast við undir liðnum Ljósmyndun. Síðan mun því taka nokkrum breytingum á næstu vikum. |
