Dagsformið

Dagsformið
Höfundur: Þorgeir Þorgeirsson

Í ljóðabókinni Dagsformið eftir Þorgeir Þorgeirsson eru sex kaflar, sem mynda safn 160 ljóða. Ljóðin eru sprottin úr nánasta umhverfi höfundar og samsömun við náttúruna er honum eðlislæg. Gjarnan er brugðið ljósi á ýmis sérkenni mannlífsins, í nálægð við efri ár. Þetta er önnur ljóðabók höfundar, sem er læknir að mennt. Hann hefur áður gefið út ljóðabókina Endurfundi.

„Dagsformið er vel heppnuð bók og ræður þar mestu um að ljóðin eru ort af þörf og einlægni, skáldið kemur til dyranna eins og það er klætt.“
Mbl. 2. mars 2006.

Kona

Konan,
þvílík uppfinning
og guðs gjöf,
var karlmaður
með í ráðum?
hún var ekki spurð
frekar en seinni daginn,
guð er slyngur.

 

 

Tilkynningar

Kjölur tók á dögunum í notkun nýja heimasíðu. Á henni er mögulegt að kynna sér starfsemi Kjalar og þær vörur sem fyrirtækið framleiðir og selur. Á næstunni mun bætast við síðuna Vefverslun þar sem viðskiptavinir geta pantað vörur frá Kili. Jafnframt munu myndasöfn með ljósmyndum eftir Björn Erlingsson bætast við undir liðnum Ljósmyndun. Síðan mun því taka nokkrum breytingum á næstu vikum.

Leita