Eitthvað að huxum

Eitthvað að huxum
Höfundur: Þorgeir Þorgeirsson

Í bókinni Eitthvað að huxum, ræða ungur piltur og eldri maður saman um málefni líðandi stundar, eiga skoðanaskipti og leika sér að orðum. Það er pilturinn sem fitjar upp á umræðuefnum, en gamli maðurinn á síðasta orðið.

Hér er einungis haldið til haga inngangsorðum piltsins, og lokaorðum eða niðurstöðum gamla mannsins. Þannig að bókin samanstendur af 567 sjálfstæðum samræðubútum, þar sem margt kemur við sögu, svo sem umhverfið, efnahagsmálin, náttúran, skáldskapurinn og almættið, svo fátt eitt sé nefnt.

Í bók þessari kemur margt óvænt í ljós, en þó kunnuglegt er snýr að mannlegu eðli og viðfangsefnum samtímans. Segja má að bókin lúti hvorki hefðbundnum skilgreiningum ljóðs eða sagnar, sem gerir verkið all nýstárlegt. Hér fara saman spurningar og svör, við 45 ljósmyndir eftir Björn Erlingsson, er vísa í fjölbreyttan hugarheim viðmælenda.

Mynd á bókarkápu gerði Kristjana F. Arndal.


Hvað um framtíðina?
Ég mundi sjá eftir jörðinni.

Stjörnur geta sprungið.
En jörðin?

Getur óréttlæti fyrnst?
Já, ef það er nógu mikið.

Þingmaðurinn greiddi atkvæði eftir eigin sannfæringu.
Kemst hann upp með það?

Hinn fullkomni glæpur, er hann til?
Hann kemst ekki upp og er því ekki til.


 

Í Munaðarnesi

Ljósmynd: Björn Erlingsson

 

 

Tilkynningar

Kjölur tók á dögunum í notkun nýja heimasíðu. Á henni er mögulegt að kynna sér starfsemi Kjalar og þær vörur sem fyrirtækið framleiðir og selur. Á næstunni mun bætast við síðuna Vefverslun þar sem viðskiptavinir geta pantað vörur frá Kili. Jafnframt munu myndasöfn með ljósmyndum eftir Björn Erlingsson bætast við undir liðnum Ljósmyndun. Síðan mun því taka nokkrum breytingum á næstu vikum.

Leita